5.5.2007 | 10:00
Þá er dagurinn runninn upp !
Jæja þá er að koma að því það er búið að vera rosalega gaman að vera í þessari undirbúningsnefnd, smá stress á köflum en það fylgir þessu víst. Við (Björg, Krissa, Berglind og ég) byrjuðum á að hittast á Duus í byrjun febrúar og töldum við okkur vera mjög tímanlega í þessu. Nú við negldum strax niður dagssettningu, salinn, matinn, hugmyndir af leikjum, tónlist, fá að skoða Njarðvíkurskóla, spáðum í minningarplattanum og svona mætti lengi telja upp. Mikil vinna var í að ná sambandi við alla, finna símanúmer og e-mail og var listinn mikið leiðréttur á þessum tíma og skreyttur með okkar fögru handskrift. Það var mjög gaman að vinna í blogg síðunni, skanna allar myndinar inn og halda sambandi við fólkið á þennann máta. Nú en bara svona til að gera þetta aðeins skemmtilegra og svo að við fengum tækifæri á að hittast oftar og drekka meira kaffi saman, já og ég tala nú ekki um rauðvínið allt, klikkaði náttúrulega allt sem gat klikkað, öll plön (hjá öðrum) stóðust ekki.
En vandamálin eru víst bara til að leysa þau og það gerðum við að sjálfsögðu. Við bara fluttum okkur í annann sal, pöntuðum okkur annað að borða, restin af tónlistinni var soðin saman í nótt með hjálp síðustu rauðvínflöskunnar úr kjallaranum. Jamm og restin kemur svo í ljós í dag. Við ákváðum snemma að vera ekki að hafa allt of miklar áhyggjur af að þurfa að skemmta fólkinu. Því hópurinn allur er með eindæmum skemmtilegur og sér bara um það sjálfur .
Ég þakka kærlega fyrir öll skemmtilegu bréfin, þetta er búið að vera ógleymanlegt. Hlakka til að sjá ykkur öll í dag kl.2 hjá VallaBakara.
Góða skemmtun í kvöld.
- Hrafnhildur.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.